07.05.2012 12:34

Vorið er komið

Jæja þá er nú vorið brostið á og fer nú að líða að því að hryssurnar kasti.
Hér er annars allt búið að vera á fullu í tamningum í vetur og fara flest trippin
 vel af stað eitthvað fór suður í þjálfun hjá Steinari bróðir
og væsir ekki um þau þar eins og þessi mynd ber með sér.




Þess má geta að þessi glæsilega hryssa er til sölu

25.02.2012 10:50

Tími á blogg


Já það er sko kominn tími á blogg, liðinn allt of langur tím frá því síðast var bloggað.


              
   Dögun frá Selnesi M:Drottning  F: Muggur frá Hólum     Framtíð frá Selnesi M:Sigurrós F:Þristur frá Þorlákshöf

Það er svosem ekki mikið að frétta, ungviðin þroskast vel og gaman að hafa þau fyrir augunu daglega og geta fylgst með skapgerðinni og ganglagi. Veturgömlu trippin hafa verið, meira og minna, á húsi fram að þessu enda hefur tíðarfarið verið frekar risjótt. En er þau komast út hleypur í þau kætin og þau spretta úr spori og að sjálfsögðu fara þau bara um á eðalgangi :) .


    
                                 Frá vinstri Dögun, Nótt, Neisti og Framtíð,
                                          
Meiri ró er yfir eldri trippunum, fædd 2009 og 2010, en þau hrökkva nú stundum í gírinn og smitast af gleði yngstu systkinanna. Og þá fer altt af stað og þau hlaupa nokkra hringi um svæðið, sem er samt ekki stærra en tæpur hektari. Þegar þau eru í þessum ham má sjá ganglagið hjá hverjum og einum og líka metnaðinn hjá summum, sem sætta sig ekki við neitt annað en að vera alltaf í forustu fyrir hópnum. Svo dettur allt í dúna logn og allir fara að éta í sátt og samlyndi.

                              Nýjar myndir í albúmi

Ja nu er der tid til et nyt blog, der er alt for lang tid siden sidst
Det er ikke så meget nyt, de unge heste udvikler sig godt og det er sjovt at have dem så tæt på så man kan holde øje med dem hverdag, specielt deres temperament og deres gangart. De års gammle heste har mere eller mindre været inde på grund af vejret, men når de kommer ud bliver de glade, de løber over det hele og selvfølgelig kun med en flot gang :)

Da er mere ro over de ældre heste, født 2009 og 2010, men de kan godt blive smitted af de yngre heste og bliver da også glade og løber rundt om folden, som er nu ikke større end knap en hektar. Når de kommer i denne tilstand kan man se hver enkels gangart og ambitioner hos nogle af dem, som ikke acceptere noget andet end lederskab over flokken. Så bliver det hele stille igen, hvor de spiser sammen i harmoni.

                                                    Nye billeder i fotoalbum




  • 1

Vafraðu um

Nafn:

Daníel Helgason

Farsími:

8667447

Staðsetning:

Sauðárkrókur
clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 46
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 116358
Samtals gestir: 24671
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 19:10:12